Það er gott að vera í skilum... við Skilum.

Hvað eru vefkökur (e. Cookies)?
Vefkökur eru litlar textaskrár sem vistaðar eru á tölvu eða öðrum snjalltækjum þegar vefsvæði Skilum er heimsótt í fyrsta sinn. Þegar þú heimsækir vefsíðuna næst í sama tæki man það eftir þér og hvernig þú notaðir síðuna.
Skilum notar vefkökur í þeim tilgangi að bæta virkni vefsíðunnar með það að markmiði að bæta þjónustu við notendur. Það er stefna Skilum að nota vefkökur með ábyrgum hætti. Skilum notar vefkökur til að sníða vefsvæðið að þörfum notenda t.d. til að vista stillingar notenda, til að vinna tölfræðilegar upplýsingar, til að greina umferð um vefsvæðið og í markaðslegum tilgangi.

Nauðsynlegar vefkökur (vefkökur frá fyrsta aðila)
Vefsíða Skilum notar bæði eigin vefkökur og vefkökur frá þriðja aðila. Eigin vefkökur Skilum eru kökur sem verða til á síðu Skilum. Vefkökur senda eingöngu upplýsingar til Skilum.
Nauðsynlegar vefkökur virkja eiginleika á vefsvæðinu sem verða að vera til staðar svo vefsvæðin virki eins og ætlast er til. Nauðsynlegar vefkökur eru vefkökur frá fyrsta aðila sem eingöngu eru notaðar af Skilum. Hér undir falla til dæmis kökur sem muna hvort notandinn er skráður inn á vefsvæði Skilum eða hvaða sérstöku stillingar notandinn hefur valið.

Vefkökur frá þriðja aðila.
Vefkökur frá þriðja aðila eru vefkökur sem verða til vegna aðgerða sem stafa frá öðrum aðila en þeim sem rekur síðuna sem þú ert að heimsækja, aðila sem Skilum er í samstarfi við eða hagnýtir þjónustu frá. Vefkökur þriðja aðila gera það að verkum að þessir aðilar geta þekkt tækið þitt aftur og eru tilkomnar vegna þjónustu sem bankinn notar.
Vefsíða Skilum notar vefkökur sem tilheyra þriðju aðilum (m.a. Google og Facebook) til að greina umferð um vefsíðu Skilum til að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn inn í notkun þess og gera leit að tilteknu efni auðveldari. Vefkökur frá þriðja aðila safna einnig upplýsingum um heimsóknir viðskiptavina á vef Skilum, til að fylgjast með árangri auglýsinga og markaðsstarfsemi þeirra á netinu (til dæmis hversu oft notandi smellir á auglýsingu okkar). Upplýsingar sem safnað er af þriðja aðila fela ekki sér er persónulegar upplýsingar sem gera kleift að bera kennsl á notandann. Vefkökurnar eru ekki nauðsynleg forsenda fyrir notkun vefsvæðisins en gegna engu að síður mikilvægu hlutverki fyrir Skilum þar sem þær greina notkun vefsvæðisins bæði hvað varðar fjölda notenda og hegðun notenda á vefnum, og svo Skilum geti útbúið markaðsefni og auglýsingar sem eru sérsniðnar ákveðnum markhópum. Notendur vefsvæðisins geta nálgast upplýsingar um hvernig þessir aðilar nota vefkökur á vefsíðum þeirra.

Meðferð Skilum á persónuupplýsingum
Kvika banki hf. hefur sett sér persónuverndarstefnu sem finna má á heimasíðu bankans.
Allar persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á vefkökum verða meðhöndlaðar og unnið með í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Kvika lýsir því yfir að ekki verði unnið með slíkar upplýsingar í öðrum tilgangi en að ofan greinir og þá verða upplýsingarnar ekki varðveittar lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslu. Persónuupplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema lög kveði á um annað.
Kvika ber ekki ábyrgð á því efni sem birtist á þessari síðu.

Hvernig stilli ég vefkökur?
Vakin er athygli á því að þriðju aðilar, s.s. þeir sem veita markaðs- eða greiningarþjónustu á netinu, nota einnig vafrakökur. Upplýsingar um notkun þeirra á vafrakökum er hægt að finna á vefsíðum þeirra.
Notendur geta lokað á vafrakökur með því að breyta stillingum á vafra. Með þeim hætti geta notendur dregið til baka samþykki sitt fyrir notkun á vafrakökum. Athuga skal að ef lokað er á allar kökur, þ.m.t. nauðsynlegar kökur, mun það hafa áhrif á virkni vefsíðunnar. Nánari upplýsingar um hvernig stilla má vafrakökur á mismunandi vöfrum má finna hér.